top of page
Search

Haf-Afl og Vestmannaeyjar skrifa undir viljayfirlýsingu.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja og Eyvar Örn Geirsson, framkvæmdastjóri Haf-Afls undirrituðu þann 30. apríl sl. viljayfirlýsingu fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar og Haf-Afls sem lýtur að því að kanna forsendur og hagkvæmni fyrir uppsetningu ölduvirkjana við Vestmannaeyjar. 


Um er að ræða nýja tækni þar sem tilgangurinn er að tryggja samfélögum raforkuöryggi með ábyrgri nýtingu auðlindarinnar, verndun náttúrunnar, nýsköpun og uppbyggingu atvinnulífs að leiðarljósi.


Haf-Afl er spennt yfir því að takast á við verkefnið og vinnunni framundan, sem mun skila sér í náttúruvænni, staðbundinni orkulausn sem hagnast samfélaginu í Vestmannaeyjum og Íslandi í heild.


Haf-Afl þakkar bæjarráði traustið, og vaska framgöngu í þessu mikla hagsumunamáli fyrir samfélagið.


 
 
 

Comments


  • Facebook
  • LinkedIn
bottom of page